THE ROYAL CANADIAN MINT
THE ROYAL CANADIAN MINT

THE ROYAL CANADIAN MINT

Royal Canadian Mint er heimsþekktur framleiðandi fjárfestingarvara úr eðalmálmum. Stofnað 1908 með starfsstöðvar í  Ottowa, Ontario og Íslendingabyggðum Winnipeg, Manitopa. Sem ríkisfyrirtæki er fyrirtækið að öllu leyti í eigu kanadíska ríkisins.

SAGA

SAGA THE ROYAL CANADIAN MINT

UPPHAFIÐ

The Royal Canadian mint var stofnað 1908, nánar tiltekið 2. janúar 1908. Það Royal Canadian mint starfaði sem útibú fyrir The Royal Mint í London. Kanada hélt tryggð sinni við ensku krúnuna og hafði mikil áhrif á landið. Kanada var hluti af breska samveldinu og treysti því The Royal Mint í Bretlandi fyrir myntsláttu sinni. Þrátt fyrir að Kanada var ekki lengur bresk nýlenda en þeir slitu sig frá Bretlandi þegar stofnað var kanadískt ríkjasamband árið 1867. 

Eins og fyrr hefur komið fram var Kanada með mikla tryggð og traust til ensku krúnunnar. Þess vegna var framleiðsla almennrar gjaldmiðlamyntar á ábyrgð bresku myntsláttuverksmiðjunnar og gekk það ágætlega alveg fram til ársins 1931.

FYRSTA MYNTIN

Fyrsta myntin sem var slegin var með mynd af Georg V konungi. Formleg opnun The Royal Canadian Mint var framkvæmd af landsstjóranum Earl Grey.  

Árið 1931 varð The Royal Canadian Mint, sjálfstæð stofnun eftir að stjórnin í Ottawa, Kanada tók yfir rekstri hennar frá Bretlandi. Það var þá sem The Royal Canadian Mint fékk formlega nafn sitt. 

 Þörfin fyrir aukna framleiðslu varð til þess að ný framleiðsla var opnuð í Winnipeg, Kanada árið 1976. Þá skiptist framleiðslan á milli Ottawa og Winnipeg. Ottawa verksmiðjan sér um að framleiða fjárfestingar- og hátíðarmynt (minningarmynt), gullstangir, medalíur og safnverk. Winnipeg verksmiðjan sér um að framleiða daglegar gjaldgengar myntir fyrir Kanada ásamt öðrum ríkjum.

HEIMSMET

Árið 2007 sló The Royal Canadian Mint, heimsmet fyrir stærstu og hreinustu gullmynt í heimi. Það var 100 kg. hlynslauf (Maple leaf) gullmynt með andliti Elísabetar II og var úr 99,999% gulli.

 Árið 2012 gaf The Royal Canadian Mint stafrænan gjaldmiðilspall sem fékk nafnið „MintChip“. Markmiðið með þessu var að gera fjármálaviðskipti öruggari, ódýrari og hraðari, bæði í rauntíma og án milliliða. Myntin var verðtryggð með hefbundnum gjaldmiðlum en ekki rafmynt eins og Bitcoin. Árið 2016, keypti fyrirtæki sem heitir Nanopay öll réttindi að MintChip. Þrátt fyrir að MintChip er ekki lengur í ríkiseigu þá lifir tæknin enn hjá einkaaðilum. 

The Royal Canadian Mint gerði frumlega tilraun til að búa til stafrænan og öruggan staðgengil fyrir reiðufé

HLUTVERK THE ROYAL CANADIAN MINT

Maple Leaf gullmyntin (Hlynslauf gullmyntin), sem kynnt var 1979, varð ein virtasta fjárfestingarmynt í heimi og var fyrsta 99,9% hreina gullmyntin sem var í dreifingu. Árið 1982 varð hún fyrsta 99,99% gullmynt heims. Árið 2007 náði hún svo fimm níum eða 99,999% af hreinu gulli. Maple Leaf myntin (Hlynslauf myntin), er einnig slegin í silfri, platínu og palladíum.

The Royal Canadian Mint er leiðandi í öryggismerkingum, hágæða skurðtækni og litanotkun á myntum. Þeir voru með þeim fyrstu myntsláttum til þess að notast við lasermerkingu, örmynstur og örflugur (Microchip) til varnar gegn fölsunum.  

The Royal Canadian Mint framleiðir myntir fyrir yfir 80 lönd víðsvegar um heiminn. 

The Royal Canadian Mint er þekkt fyrir að framleiða frumlegar myntir, þeir t.d. gerðu fyrstu ferhyrndu myntina, fyrstu glóandi myntina ásamt því að gera fyrstu lituðu gjaldgegnu myntina. Árið 2004 gáfu þeir út 25 cent með rauðum poppy blómum. 

The Royal Canadian Mint sér um framleiðslu á gull- og silfurstöngum sem eru LBMA (London Bullion Market Association) viðurkenndar. Þeir veita einnig geymsluþjónustu, öruggt geymslupláss fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja geyma eðalmálma sína á öruggum stað. 

The Royal Canadian Mint starfar sem krúnufyrirtæki (Crown Corporation), sem er í eigu kanadíska ríkisins. 

Í Ottawa er safn og gestamiðstöð þar sem gestir geta séð mynt verða til og skoðað verðmætar sýningar.

METAL METAL METAL METAL METAL METAL METAL image/svg+xml Openclipart metal icon 2008-11-19T17:08:54 https://openclipart.org/detail/20277/metal-icon-by-farmeral-20277 Farmeral cartoon color grey icon ingot metal

Skoðaðu & veldu Málma

Skoðaðu úrval af gulli, silfri og platínu. Öll verð eru sýnd í rauntíma.

Örugg rafræn auðkenning

Tryggðu örugga og hraða auðkenningu með rafrænum skilríkjum auðvelt og fljótlegt,

Ljúktu kaupum

Ljúktu kaupunum í öruggu greiðsluferli hjá okkur.