UM OKKUR

Gullmarkaðurinn-Verslun er sérhæfð vefverslun í sölu á fjárfestinga gulli og silfri í formi mynta og stanga frá öllum helstu myntsláttum heims. Sem mörg hafa starfað í hundruði eða jafnvel yfir þúsund ár. Í tilefni 2 ára afmælis Gullmarkaðarins var tekin ákvörðun um að opna vefverslun sem er ætlað að mæta þörfum og áhuga fjárfesta og annarra viðskiptavina sem vilja getað haldið á sínum eðalmálmum, jafnvel þó að það sé kostnaðarsamara en reglubundinn gull-og silfurkaup. Starfsemin byggir á  traustum grunni reynslu og faglegrar þekkingar á markaði eðalmálma.

Markmið okkar er að gera almenningi einfalt, öruggt og aðgengilegt að fjárfesta í gulli og silfri. Á tímum þar sem sífellt fleiri leita leiða til að verja verðmæti sín og dreifa áhættu, bjóðum við upp á áreiðanlega lausn með vönduðum vörum og skýru kaupferli.

Við leggjum áherslu á gagnsæi, traust og persónulega þjónustu. Hvort sem um er að ræða fyrstu kaup eða áframhaldandi uppbyggingu eignasafns, erum við hér til að aðstoða þig við að velja réttu lausnina með faglegri ráðgjöf og öruggum viðskiptum.

HÆSTU STAÐLAR VIÐ SÖLU

Gullmarkaðurinn tók upp ströngustu staðla við sölu sem The WORLD GOLD COUNCIL mælir með: Heiðarleiki, Gegnsæi, Stöðugleiki, fylgja lögum og reglum í hvívetna. Vera fyrirmynd á markaði!

LONDON BULLION MARKET ASSOCIATION

Aðeins boðið upp á gull frá LBMA aðildaraðilum.
Tryggir: hreinleika, gæði, seljanleika og rekjanleika eðalmálma eins og gulls og silfurs. 

Þorgerður Halldórsdóttir

Framkvæmdastjóri og meðeigandi

Þorgerður Halldórsdóttir hefur 20 ára starfsreynslu að vinna með fólki og börnum. Ásamt því að hafa unnið í sölu og fjármálageiranum.

Þorgerður sótti nám við Háskóla Íslands, lögfræði og kennslufræði fyrir grunnskóla.

Hún hefur sótt námskeið og fræðslu í hugrænni atferlismeðferð, tilfinningum, félagsfærni og sjálfsmynd, til þess að auka þekkingu sína við að koma til móts við fjölbreyttan hóp af einstaklingum.

Þorgerður hefur auk þess haft mikinn áhuga á eðalmálmum og fjárfestingum í raunverulegum eignum, sótt fjölda námskeiða og tekið þátt í ráðstefnum og sýningum um eðalmálma, víða um heim.

Stjórn

Halldór Björn Baldursson, stjórnarformaður og stofnandi

Lýður Árni Friðjónsson, stjórnarmaður

Markús Örn Þórarinsson, stjórnarmaður