Fjárfestingarmyntir
Í heimi þar sem markaðir breytast á hverjum degi standa gull og silfur áfram sem tákn um stöðugleika, traust og varanleg verðmæti. Fjárfestingarmyntir (bullion coins) eru meðal vinsælustu leiða fjárfesta um allan heim til að eignast eðalmálma á einfaldan, öruggan og glæsilegan hátt.
Fjárfestingarmyntir
Fjárfestingarmyntir úr gulli og silfri – verðmæti sem endast í kynslóðir
AF HVERJU ERU FJÁRFESTINGARMYNTIR FRÁBÆR FYRSTU KAUP?
Fyrir þá sem vilja hefja ferðalag sitt í eðalmálmum eru fjárfestingarmyntir oft taldar besta fyrsta skrefið.*
Alþjóðlega viðurkenndar
Vinsælustu fjárfestingarmyntir heims eru þekktar og eftirsóttar á alþjóðlegum mörkuðum. Það gerir þær auðveldar í kaupum og sölu hvar sem er í heiminum.
Sveigjanleg leið inn í góðmálma
Silfurmyntir bjóða upp á hagkvæma leið fyrir nýja fjárfesta til að byggja upp eign í eðalmálmum, á meðan gullmyntir eru klassískt val þeirra sem vilja varðveita verðmæti til lengri tíma.
Hreinleiki og gæði
Flestar helstu fjárfestingarmyntir eru framleiddar af ríkisviðurkenndum myntsláttum og innihalda gull eða silfur af hæsta gæðaflokki. Hver mynt er trygging fyrir nákvæmri vigt, hreinleika og gæðum.
Raunveruleg eign í þinni vörslu
Ólíkt stafrænum eignum eða pappírseignum eru gull- og silfurmyntir áþreifanleg verðmæti sem þú átt sjálf/ur og getur varðveitt óháð kerfum eða milliliðum.
VINSÆLUSTU FJÁRFESTINGARMYNTIR HEIMS
Maple Leaf
Kanadíska Maple Leaf er meðal virtustu fjárfestingarmynta heims og fæst bæði í gulli og silfri. Hún er þekkt fyrir einstakan hreinleika, glæsilega hönnun og alþjóðlegt traust.
American Eagle
American Eagle hefur verið ein mest selda fjárfestingarmynt heims í áratugi. Hún sameinar sterka sögu, fallega hönnun og mikla eftirspurn meðal fjárfesta.
Britannia
Breska Britannia er tákn styrks og stöðugleika. Hún er framleidd bæði í gulli og silfri og er þekkt fyrir háþróaða öryggiseiginleika og einstakt handverk.
Krugerrand
Krugerrand er ein þekktasta gullmynt heims og hefur verið hornsteinn í eignasöfnum fjárfesta síðan 1967. Á síðari árum hefur hún einnig verið gefin út í silfri.
Vienna Philharmonic
Innblásin af tónlistararfleifð Austurríkis er Philharmonic ein vinsælasta fjárfestingarmynt Evrópu og fæst bæði í gulli og silfri.
Kangaroo
Frá hinni heimsþekktu Perth Mint kemur ein vinsælasta og virtasta fjárfestingarmynt heims, Kangaroo. Myntin er þekkt fyrir framúrskarandi framleiðslugæði og síbreytilega hönnun þar sem kengúran er breytist á framhlið myntar, ár hvert.
GULL OG SILFUR - FULLKOMIN BLANDA
Gull hefur í aldaraðir verið tákn auðs, öryggis og varðveislu verðmæta. Silfur hefur á sama tíma verið lykilmálmur í viðskiptum, iðnaði og fjárfestingum og býður upp á aðgengilegri inngöngu fyrir marga fjárfesta.
Saman mynda þessir tveir eðalmálmar sterkan grunn að fjölbreyttu eignasafni þar sem markmiðið er að vernda og varðveita verðmæti til framtíðar.
FJÁRFESTING SEM HEFUR BÆÐI FEGURÐ OG TILGANG
Fjárfestingarmyntir eru meira en einfaldur málmur. Þær eru sambland af sögu, handverki, öryggi og raunverulegum verðmætum. Hver mynt segir sína sögu og ber með sér arfleifð sem hefur staðist tímans tönn.
Þegar þú kaupir fjárfestingarmynt úr gulli eða silfri ert þú ekki aðeins að eignast góðmálm – þú ert að eignast verðmæti sem hafa verið treyst í þúsundir ára og munu halda áfram að skipta máli um ókomna framtíð.
ÖRYGGI SEM FYLGIR HVERRI FJÁRFESTINGU
Þegar þú fjárfestir í gulli eða silfri hjá okkur fylgir kaupábyrgð. Við kaupum viðurkenndar fjárfestingarmyntir og stangir til baka, sem veitir aukið öryggi, sveigjanleika og traust til framtíðar.
“Lúxus er ekki það sem glansar í dag – heldur það sem heldur verðmæti sínu á morgun.”
Fjárfestingarmyntir í Silfri
Hafðu samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar eða óskar eftir viðtalstíma.
Hafa sambandSkoðaðu & veldu Málma
Skoðaðu úrval af gulli, silfri og platínu. Öll verð eru sýnd í rauntíma.
Örugg rafræn auðkenning
Tryggðu örugga og hraða auðkenningu með rafrænum skilríkjum auðvelt og fljótlegt,
Ljúktu kaupum
Ljúktu kaupunum í öruggu greiðsluferli hjá okkur.













