HERAEUS
Heraeus var stofnað árið 1660 í Hanua, Þýskalandi og byrjaði sem fjölskyldu rekið apótek. Heraeus er alþjóðleg þýsk samsteypa sem sérhæfir sig í eðalmálmum, lækningatækni ásamt því að vera í hátæknigeirum. Heraeus hefur því þróast úr því að vera apótek yfir í alþjóðlega samsteypu.
Heraeus Precious Metals er undireining Heraeus, og er meðal fremstu aðila heims á sviði endurvinnslu, framleiðslu og sölu gulls ásamt öðrum eðalmálmum.
SAGA
SAGA HERAEUS
UPPHAFIÐ
Rætur Heraeus má rekja aftur til ársins 1660 þegar það var fimm kynslóða apótek í Hanau. Fyrsta tenging Heraeus við gull var árið 1694, þegar Franz Heraeus fékk gull til að gylla skraut m.a. fyrir franska kirkju sem var í Hanua, Þýskalandi. Þetta er elsta heimild um þátttöku Heraeus í eðalmálmum og er núna einn traustasti og þekktasti framleiðandi í eðalmálmum.
Árið 1851, varð Heraeus ekki bara apótek heldur hátæknifyrirtæki þar sem þeir m.a. framleiddu eðalmálma, tannlækna- og lækningavörur og kvarsgler.
Nýsköpun jókst með árunum í gull- og platínubræðslu. Það var þó mjög merkilegt þegar árið 1969, varð Heraeus þekkt á alþjóðlega markaðinum og var með tækni til tunglferða svo eitthvað sé nefnt.
HERAEUS
Heraeus gull er þekkt fyrir háan hreinleika, alþjóðlega viðurkenningu og framúrskarandi öryggis eiginleika. Hvort sem um er ræða safnara, fjárfesta eða þá sem vilja setja fjármuni sína í öruggi, þá er Heraeus stangir traustur og sveigjanlegur kostur með sterka festu, öryggistækni og alþjóðleg vottorð.
Heraeus þjónar alþjóðlegum markaði, með viðskiptavini í yfir 40 löndum víðsvegar um heiminn.
HERAEUS PRECIOUS METALS
Heraeus Precious Metals bjóða upp á gull-, silfur-, og platínu vörur, ásamt öðrum eðalmálmum sem t.d. er notað í tækni og iðnað en ekki bara sem fjárfesting.
Heraeus Precious Metals er eitt af leiðandi alþjóðlegum fyrirtækjum á sviði endurnýtingu og sölu á eðalmálmum. Fyrirtækið sameinar viðskipti og nýsköpun og er Heraeus Precious Metals mikið í því að reyna notast við eðalmálma í formi lækning t.d.
Eðalmálmar eru nauðsynlegir þegar kemur að tækniframförum og gegna ómissandi hlutverki í að móta sjálfbæra framtíð. Eðalmálmar hjálpa við að berjast gegn krabbameini með lyfjafræðilegum innihaldsefnum.
Heraeus samstæðurnar hafa skuldbundið sig í því að nýta alla möguleikana sem eðalmálmar hafa upp á að bjóða en vilja gera það á eins ábyrgan hátt og mögulegt er.
Heraeus samstæðurnar hafa allar ákveðið hlutverk og vilja allar vera leiðandi í sínum hlutverkum.
Hafðu samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar eða óskar eftir viðtalstíma.
Hafa sambandSkoðaðu & veldu Málma
Skoðaðu úrval af gulli, silfri og platínu. Öll verð eru sýnd í rauntíma.
Örugg rafræn auðkenning
Tryggðu örugga og hraða auðkenningu með rafrænum skilríkjum auðvelt og fljótlegt,
Ljúktu kaupum
Ljúktu kaupunum í öruggu greiðsluferli hjá okkur.