Úr Laxdælu
Gull og silfur og margs konar skart kemur við sögu í Laxdælu. Þar má til dæmis nefna fjóra drauma Guðrúnar Ósvífursdóttur þegar hún á unga aldri dreymir fyrir um væntanlega eiginmenn sína. Fyrst dreymir hana að hún hafi haft krókfald á höfði sem henni fannst fara sér illa og því kastaði hún honum út í læk. Fyrsti maður hennar varð Þorvaldur Halldórsson sem henni fannst lítilsigldur og ekki samboðinn sér. Í næsta draumi hafði hún silfurhring á hendi sem henni þótti fara sér vel. Hringurinn rann hins vegar af hendinni ofan í vatn. Annar eiginmaðurinn, Þórður Ingunnarson, drukknaði.
Næst hafði hún gullhring á hendi og þá þótti henni bættur skaðinn af silfurhringnum. Í draumnum brotnaði hringurinn í tvennt á steini og blæddi úr brotunum. Þriðji eiginmaður var Bolli Þorleiksson sem varð fóstbróður sínum Kjartani Ólafssyni að bana. Bolli varð síðan að gjalda með lífi sínu fyrir vígið. Í fjórða draumnum hafði hún á höfði hjálm af gulli, mjög gimsteinum settum. Hjálmurinn þótti henni heldur þungur svo að hún bar höfuðið hallt þar til hann steyptist af henni út á Hvammsfjörð. Síðasti eiginmaðurinn var héraðshöfðinginn Þorkell Eyjólfsson sem drukknaði.