Úr Gísla sögu Súrssonar

Frægur er atburður úr Gísla sögu Súrssonar þegar Eyjólfur grái Þórðarson fór á fund Auðar Vésteinsdóttur, konu Gísla Súrssonar, með digran silfursjóð til að múta henni til að framselja Gísla sem var útlægur. Svo segir sagan orðrétt: „Auður tekur nú féð og lætur koma í einn stóran sjóð, stendur hún síðan upp og rekur sjóðinn með silfrinu á nasir Eyjólfi svo að þegar stökkur blóð um hann allan og mælti: „Haf nú þetta fyrir auðtryggni þína og hvert ógagn með. Engi von var þér þess að eg mundi selja bónda minn í hendur illmenni þínu. Haf nú þetta og með bæði skömm og klæki. Skaltu það muna, vesall maður, meðan þú lifir að kona hefir barið þig. En þú munt ekki að heldur fá það er þú vildir.“