Maple Leaf frá Royal Canadian Mint á frábæru verði!

Maple Leaf frá Royal Canadian Mint á frábæru verði!

Gullmarkaðurinn er nú með hina sígildu og heimsþekktu Maple Leaf silfurmynt á frábæru verði. Þar sem Gullmarkaðurinn – verslun styðst við rauntímaverð njóta viðskiptavinir þess þegar verð á markaði lækkar. Kanadíska Maple Leaf myntin er slegin af Royal Canadian Mint myntsláttunni sem er þekkt fyrir tæknilega fullkomnun og hæsta hreinleikastaðal heims. Maple Leaf er opinber lögeyrir í Kanada og hefur í áratugi notið viðurkenningar fjárfesta sem góður mælikvarði á gæði.

Laufblað hlynsins er þjóðartákn og þjóðfáni Kanada og prýðir það bakhlið Maple Leaf mynta. Hönnunin er í senn einföld og áhrifamikil og hefur gert Maple Leaf að einni þekktustu silfurmynt veraldar. Á framhliðinni er mynd af ríkjandi þjóðhöfðingja Kanada sem er sjálfstætt ríki innan breska samveldisins og undirstrikar það að um opinbera útgáfu er að ræða. Karl þriðji prýðir nýjustu útgáfur Maple Leaf sem tengir saman hefðina og samtímann. Maple Leaf silfurmyntin vegur 1 oz og er 38 mm í þvermál. Fyrsta útgáfa myntarinnar var slegin árið 1988.

Ef þú ert að leita að öruggri fjárfestingu og fallegum safngrip í senn, þá er Maple Leaf fullkominn kostur á frábæru verði. Hægt er að kaupa 20 stykki af þessari fallegu einnar únsu silfurmynt í sérhannaðri og glæsilegri Volterra-Uno viðhafnaröskju. 

Kynntu þér kosti þess að fjárfesta í Maple Leaf í vefversluninni okkar á gullverslun.is

Fjárfestu í dag fyrir morgundaginn.

Til baka í blogg